Sumarið er að koma!
Nú erum við í óðaönn að ganga frá pöntunum fyrir sumarið. Þar má nefna að við höfum tekið við Valley kayak umboðinu og kemur fullur gámur af flottum bátum til landsins í vor. Í þeim flota eru standard plastbátar til Carbon/Kevlar bátar. Einnig munum við leggja mikla áherslu á Sit-On-Top veiðibátana og hægt er að fara inn á fésbókina okkar til að skoða myndir frá síðasta sumri. Einnig höfum við bætt við okkur fjöðrum í hattinn þegar kemur að fjallabúnaði. Eftir tæplega tveggja ára leit í meira en fimmtán löndum höfum við fundið bakpoka frá BoLL sem við erum vægast sagt ánægðir með. Öflugri pokar hafa vart sést á markaðinum.
Auðvitað höfum við háleit markmið þegar kemur að ThunderCat og er fimmti keppnisbáturinn væntanlegur í vor.
Það er gríðarlega margt skemmtilegt framundan hjá okkur í fjölskyldufirmanu GG Sjósport.







