Gummíbátar & Gallar hafa sótt námskeið hjá Seago Yachting Ltd í Bretlandi og fengið viðurkenningu til að annast ábyrgðarskoðun á Seago björgunarbátum.
Seago Yachting Ltd hefur gefið út 12 ára ábyrgð á öllum björgunarbátum og er viðurkenningin nauðsynlegur þáttur í að viðhalda ábyrgðinni á íslandi. Hjá okkur færðu einnig allt til eigin viðgerða á slöngubátum og göllum.
Við bjóðum hágæða, persónulega þjónustu í viðgerðum á slöngubátum og göllum á hagstæðu verði.
Við búum yfir mikilli reynslu ásamt þeim nauðsynlegu tækjum til að viðhalda háum gæðastaðli ásamt að sinna ábyrgðarmálum hjá endursöluaðilum björgunarbúnaðar.