• Vörur tengdar skemmtibátum

    Hvort sem þú átt skemmtibát, RIB, slöngubát eða seglbát, finnur þú eitthvað hér.

  • Gul ION Þurrgallar

    Mest seldi gallinn á Íslandi | GCX4 öndunarefni | Úlnliðs- og hálsþéttir úr neoprene
  • Surfvörur

    Sívaxandi sport sem hægt er að stunda allt í kringum Ísland
  • Björgunarvesti

    Til í krakka- og fullorðinsstærðum | Erum Viðurkenndur þjónustuaðili á Íslandi
  • Töskubátar

      Sniðug lausn | 12 ára ábyrgð | 3 ára skoðun
  •  

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

    .

Um Okkur

Félagið hefur verið rekið sem hliðarstarfsemi frá árinu 2002 og byrjaði með viðgerðum á slöngubátum og göllum. Fljótlega fór viðgerðarþjónustan að vinda upp á sig en í dag önnumst við og þjónustum margar af stærstu björgunarsveitum landsins ásamt ábyrgðarviðgerðum hjá innflutningsaðilum. Árið 2005 hófum við innflutning á lífbjörgunarbátum frá Seago í Bretlandi þar sem að okkar mati rýkti fákeppi hér heima fyrir. Ekki var óalgengt að skemmtibátaeigendur sigldu með gamla óskoðaða lífbáta í von og óvon um að þeir virkuðu, þar sem kaup og skoðanir voru ekki á allra færi. Afrakstur okkar í dag er að skemmtibátaeigendur geta nú fjárfest í nýjum lífbát á viðráðanlegu verði. Við teljum okkur stuðla að bættu öryggi á sjó og tryggjum örugga og góða þjónustu við lífbáta okkar á sanngjörnum grundvelli.

Frá því við hófum formlega störf hefur mikið vatn runnið til sjávar og stöðugt bætist við vöruúvalið. Forsenda fyrir lágri verðlagningu er lítil yfirbygging, tíðir flutningar, staðgreiðsluviðskipti og gott samstarf við íslenska endursöluaðila, viðskiptavini sem og erlenda birgja.

Á þessum árum höfum við skynjað að íslendingar gera kröfur til þriggja þátta: Gott verð, góða vöru og góða þjónustu.

Framtíðin er ekkert annað en björt, fyrir okkur og ykkur.

kv Leifur og Tommi

Gúmmíbátar & Gallar / IT Lausnir ehf

Askalind 7

201 Kópavogur

Sími: 571 1020

GSM: 6607570

Tölvupóstfang: gummibatar(hjá)gummibatar.is

Kennitala: 4711022020

Bankaupplýsingar: 137-26-4711

 

 

web counter