ThunderCat
GG Sjósport eru meðlimir í alþjóða ThunderCat samfélaginu:



ThunderCat Racing á Íslandi
Velkomin á vefsíðuhluta ThunderCat Racing á Íslandi, heimsins villtasta vatnasport. Slakaðu á og ekki vera hrædd(ur), láttu bara eins og heima hjá þér. Kannski með kaffibolla? te? eða.. kannski viltu eitthvað sterkara?
ThunderCat Racing er um þessar mundir ein mest vaxandi íþrótt í heiminum – og klárlega ein sú skemmtilegasta. Keppnir eru haldar hér á landi, norðurlöndum, evrópu, Suður Afríku, Nýja Sjálandi og Noður Ameríku... svo allir sem taka þátt verða sjálfkrafa hluti af ört vaxandi heimsnetinu.
Hér í þessu hluta getur þú aflað þér upplýsinga um sportið og hvernig á að taka þátt. Ein besta leiðin er að tengjast beint inn á ThunderCat Racing Iceland á facebook. Þar er lifandi spjall og allir sem eru tengdir íþróttinni hérna heima sjá innleggin og eru tilbúnir að svara öllum fyrirspurnum. Mundu eftir að smella á “like“ til að geta fylgst með umræðunni.
Í stuttu máli er ThunderCat þetta svona..
ThunderCat racing er háadrenalín hraðakeppni á bátum sem ná yfir 100km hraða. Bátarnir eru léttar tvíbitnur allir með 50hp mótor. Í hverjum bát er svokallaður Pilot og CoPilot. Pilot er sá sem sér um að keyra bátinn (stjórnar mótor) og CoPilot sér alfarið um jafnvægi. Fullkomið samspil milli Pilot og CoPilot skilar skilar betri tíma í brautinni.
Brautin:
Í upphafi keppni byrjar Pilot á landi og þegar flautað er til leiks hleypur hann í bátinn og ræsir af stað. Brautin sjálf liggur í gegnum öldurót sem gerir keppnina gríðarlega skemmtilega og krefjandi. Bátarnir stökkva oft gríðarhátt og mikið mæðir á Co-Pilot að halda fullkomnu jafnvægi í gegnum brautina. Einnig eru haldnar hefðbundnar hraðakeppnir með útslætti.
Ef þú ert ein(n) af þeim sem vill kynningu þá er okkur sönn ánægja að kynna sportið. Við munum reglulega vera með kynningarviðburði m.a. verður hægt að prófa bátana á Reykjavíkursvæðinu. Sendu okkur póst á gummibatar(hja)gummibatar.is til að komast á skrá. Næst þegar við förum í prufurúnt fyrir þá sem vilja kynna sér sportið frekar færðu póst frá okkur.
Á döfinni..
Fyrsta ThunderCat keppnin var haldin við Sæbraut helgina 23-24 júlí og var útsláttarkeppni ásamt tímatöku. Keppnir eru opnar öllum þeim sem hafa áhuga og hægt er að sjá allar myndir úr fésbókarhlutanum.
Næstu keppnir eru á menningar (Reykavík) og ljósanótt (Keflavík). Einnig er verið að skipuleggja keppni í Vestmannaeyjum. Skráning er þegar komin á fullt skrið fyrir menningarnótt. Nýliðaprófanir verða þriðjudaginn 16 ágúst, tímataka 18 ágúst og keppni 20 ágúst (Menningardag).
EKKI VERA FEIMIN AÐ SKRÁ ÞIG Í PRÓFANIR, ÞÉR VERÐUR TEKIÐ VEL :)
Þáttaka í keppni
Þeir sem skrá sig, fá aðlögungartíma vikuna áður til að kynnast bátunum og í kjölfarið munu mörg tveggja manna lið fæðast. Eftir aðlögun og tímatöku er allt sett á fullt skrið og keppt til sigurs. Við vitum vel að þetta hljómar of gott til að vera satt, þeas að fá aðgang að öflugum bátum og svona en þetta er allt hluti af kynningunni.

Þannig að...
Hefur þú það sem þarf? Ertu tilbúin að stjórna ThunderCat (P750) í gegnum allt af 5m frussandi ölduhæð í keppni? Dreymir þig að keppa í norðurlanda,evrópu eða heimsmeistarakeppni? Ef svarið er "já" þá þarfnast föðurlandið þín strax! Ef sjórinn heillar og þig langar til að keppa við hörðustu aðstæður komdu þér í samband við okkur. Engin reynsla áskilin - þjálfun til staðar. Mælt með góðum húmor og ævintýraþrá.
Skráning og allar nánari upplýsingar sendist á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Nokkur YouTube myndbönd:
Bad Day / Tímataka við Sæbraut / SurfX / World Record
Kynntu þér ThunderCat racing frekar með því að smella á linkana hér að neðan:
www.thundercatracing.com | www.thundercatracing.se | www.thundercatracing.co.uk | www.thundercatracing.no | www.thundercatracing.nl




